Aftur í námskeið

Fundarstjórn

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 09:00

Lýsing

Hvað hefur þú setið marga fundi sem þér finnst ekki hafa þjónað tilgangi sínum?

Almennt þurfum við að sitja marga fundi starfa okkar vegna. Þeir eru ólíkir og geta haft ólíkan tilgang. Fundir geta þjónað þeim tilgangi að leiða fram ólík sjónarmið og skapa umræðu eða þeir snúast um formlega ákvarðanatöku. Hvort sem um er að ræða vinnufundi, umræðufundi eða ákvarðanatökufundi, skiptir máli hvernig þeir eru skipulagðir og hvernig þeim er stýrt.

Til þess að fundir beri árangur, og þar sé ekki farið um víðan völl, þurfa þeir að vera vel undirbúnir og formreglur þurfa að vera skýrar og gagnsæjar. Fundarstjóra ber að nýta fundaformið til að laða fram það besta í hverjum fundarmanni, en einnig að vera tilbúinn til að höggva á hnútinn, og leiða fram niðurstöðu samkvæmt réttum leikreglum.

Ávinningurinn af öflugri fundarstjórn og skipulagningu getur verið margvíslegur. Slíkt sparar tíma, bætir samskipti og getur leitt til þess að kalla fram ólík sjónarmið í umræðu sem síðan byggir undir betri ákvarðanir.

Efnistök
  • Hlutverk og ábyrgð fundarstjóra
  • Undirbúningur og skipulag funda
  • Markmið, dagskrá og fundarsköp
  • Mismunandi tegundir funda
  • Stjórnun umræðna og þátttaka fundarmanna
  • Ágreiningur og ólík sjónarmið á fundum
  • Ákvarðanataka og eftirfylgni
  • Leiðir til að auka skilvirkni og árangur funda
Hæfniviðmið

Að geta undirbúið fundi sem hafa skýran tilgang og markmið.
Að geta leitt umræður þannig að fundarmenn taki virkan þátt.
Að geta skapað góðan farveg fyrir ólík sjónarmið og uppbyggilegar umræður.
Að geta lokið fundum með skýrum niðurstöðum og næstu skrefum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Opna háskólanum í Reykjavík. ATH. Sæti á námskeiðið er aðeins tryggt þegar staðfesting hefur borist frá Opna háskólanum í HR

Samstarfsaðili
Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík
Umsjón
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og þingmaður
Námsform
Staðnám
Tími
  • 4. febrúar 2027 klukkan 09:00-12:00
  • 11. febrúar 2027 klukkan 09:00-12:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
6 klst (3x2)
Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning
Opni háskólinn í HR Menntavegur 1, 102 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Fyrir stjórnendur, leiðtoga, verkefnastjórnendur og millistjórnendur