Aftur í námskeið

Gervigreind fyrir stjórnendur og sérfræðinga hjá hinu opinbera

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Hvernig getur gervigreind auðveldað daglegt starf í opinberri þjónustu?

Námskeiðið veitir hagnýta og skýra yfirsýn yfir notkun gervigreindar í starfsemi hins opinbera, með sérstaka áherslu á ábyrgð stjórnenda, öryggi gagna, lagaramma og raunhæf notkunartilvik.

Farið er yfir hvernig gervigreind getur stutt við skilvirkni, þjónustu og einföldun verkferla, en jafnframt hvaða áskoranir fylgja notkun hennar, meðal annars varðandi persónuvernd, bjögun, áreiðanleika svara og reglur um meðferð gagna.

Á námskeiðinu eru sýnd raunveruleg dæmi um notkun gervigreindar í opinberu samhengi og þátttakendur fá verkfæri til að meta tækifæri, áhættu og næstu skref í eigin starfsemi.

Efnistök
  • Hvað er gervigreind og dæmi um mismunandi notkunartilvik  
  • Áreiðanleiki gervigreindar
  • Sérstakar áskoranir í íslensku samhengi
  • Hlutverk stjórnenda við innleiðingu gervigreindar
  • Gagnaöryggi, persónuvernd og GDPR
  • Lagaumhverfi og gervigreindaráætlun stjórnvalda
  • Verklagsreglur stjórnarráðsins
  • Reglur um meðferð gagna hjá hinu opinbera
  • AI Act og þróun evrópsks regluverks
  • Skilvirkni og þjónusta hjá hinu opinbera
  • Hvaða verkefni skila árangri hratt?
  • Þjálfun og hæfni starfsfólks
  • Hvernig byggja má upp örugga og ábyrga notkun innan stofnana
  • Hagnýtur tékklisti fyrir notkun og innleiðingu 
Hæfniviðmið

Að skilja helstu hugtök og notkunarmöguleika gervigreindar.

Að þekkja tækifæri og takmarkanir gervigreindar í opinberri starfsemi.

Að geta metið áhættu tengda gagnaöryggi, persónuvernd og áreiðanleika niðurstaðna.

Að öðlast yfirsýn yfir helsta lagaramma og þróun regluverks.

Að þekkja hlutverk stjórnenda við innleiðingu gervigreindar.

Að geta hafið og staðið bakvið markvissa og ábyrga innleiðingu innan eigin starfsemi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður, hagnýt dæmi um notkun gervigreindar í raunverulegum verkefnum.

Gott að vita

Æskilegt er að mæta með eigin fartölvu.

Umsjón
Dr. Atli Þór Sigurgeirsson sérfræðingur í gervigreind hjá Stjórnarráðinu
Námsform
Staðnám
Tími
  • 22. september 2026 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
22.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Stjórnendur, sérfræðingar og verkefnastjórar hjá hinu opinbera – sem og allt starfsfólk sem kemur að stefnumótun eða notkun gervigreindar í starfi.