Hvernig getur gervigreind nýst í starfi og daglegu lífi?
Þetta námskeið er inngangur að því hvernig gervigreind (AI) er nýtt í daglegu lífi og í faglegum aðstæðum, með sérstakri áherslu á íslenskar lausnir.
Þú færð innsýn í helstu tegundir gervigreindar, möguleika og takmarkanir hennar, auk þess að læra hvernig hægt er að beita gervigreind á ábyrgan hátt.
Námskeiðið er hannað fyrir þau sem vilja skilja hvernig gervigreind virkar í raunverulegum aðstæðum— án þess að þurfa djúpa tæknilega þekkingu.
Þú færð leiðsögn um þróun gervigreindar, helstu kerfistegundir (svo sem spálíkön, spjallkerfi og sjálfstæð kerfi) og hvernig íslensk fyrirtæki og stofnanir nýta þau. Einnig verður fjallað um siðferðileg álitamál, skekkjur í gögnum og áhættu tengda persónuvernd og notkun lokaðra AI-kerfa.
Námskeiðið er einnig kennt á ensku. / This course is also taught in english.
Að öðlast þekkingu til að taka upplýstar ákvarðanir um notkun gervigreindar
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þér kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem þér hentar.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Opna háskólanum í Reykjavík.
ATH. Sæti á námskeiðið er aðeins tryggt þegar staðfesting hefur borist frá Opna háskólanum.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða