Breyttar áherslur í starfi með fólki með fötlun kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.
Námið miðar að því að auka færni og þekkingu á aðstæðum og þörfum fólks með fatlanir í því skyni að efla lífsgæði þeirra og virkni. Þar er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fólks með fatlanir.
Námið er skipulagt í samræmi við námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Námið spannar 324 klukkustundir en 164 stundir eru með leiðbeinanda og 160 stundir án leiðbeinanda (starfsreynsla/þjálfun).
Nánar má sjá um námið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Kennsla fer fram í vefnámi á Teams mánudaga og miðvikudaga kl. 17.00 - 20.30.
Einnig er staðlota einn laugardag í mánuði í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 230 Reykjanesbæ, 3. hæð. Staðlotan verður tekin upp fyrir þau sem ekki komast.
Mögulegt er að hlusta á upptökur eftir á en þá þarf að skila inn ígrundun og verkefni um efni tímans.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá MSS.
Námi lýkur 16. desember. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.