Í náminu eykur þú færni þína og þekkingu á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga þinna til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Lögð er áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi skjólstæðinga og starfsfólks.
Námið er skipulagt í samræmi við námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er 210 klukkustundir.
Nánar um námið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Kennsla fer fram í vefnámi á Teams á mánudögum og miðvikudögum kl. 17-20. Staðlotur verða einu sinni í mánuði í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 230 Reykjanesbæ, 3. hæð.
Mögulegt er að hlusta á upptökur eftir á en þá þarf að skila inn ígrundun og verkefni um efni tímans
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá MSS
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 09.09.2026 | Fagnámskeið fyrir starfsmenn í heilbrigðis og félagsþjónustu | 17:00 | Ýmsir sérfræðingar |