Aftur í námskeið

NTÍ | Árangursríkar umræður- skilvirkir fundir

Lýsing

Góðar umræður skipta miklu máli í samstarfi. Þær hafa áhrif á hvernig ákvarðanir eru teknar, hvort fólk upplifir sig hlustað á og hversu auðvelt er að vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Þó flestir fundir gangi ágætlega er oft hægt að gera þá markvissari og innihaldsríkari.

Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig skapa má betri umræðu á fundum og í teymum. Fjallað er um hvað styður opið samtal, hvernig hægt er að takast á við ágreining á uppbyggilegan hátt og hvaða einföldu aðferðir geta hjálpað hópum að taka betri ákvarðanir. Einnig er skoðað hvernig hegðun, hlutverk og framsetning geta haft áhrif á umræðuna og niðurstöðuna.

Áhersla er lögð á hagnýtar leiðir sem auðvelt er að yfirfæra á daglegt starf. Þátttakendur fá verkfæri sem styðja við skýrari samskipti, virkari þátttöku og betra samstarf í teymum og á fundum.

Efnistök
  • Hlutverk fundarstjóra þegar mál eru rædd
  • Að virkja og hemja fólk í umræðum
  • Meðhöndlun ágreinings á fundum
  • Að stýra umræðum
Hæfniviðmið

Að þátttakendur geti stýrt og haft betri og skemmtilegri fundi

Að geta öðlast meiri árangur í samstarfi

Að geta fengið aukna færni í að leysa ágreining

Að öðlast meiri starfsánægju

Fyrirkomulag

Hagnýt verkefni, umræður og einfaldar æfingar þar sem þátttakendur prófa aðferðir sem nýtast í raunverulegum aðstæðum. Unnið er bæði einstaklingslega og í hópum með áherslu á virka þátttöku og yfirfærslu á eigið starf.

Umsjón
Eyþór Eðvarðsson þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
Námsform
Staðnám
Tími
  • 8. júní 2026 klukkan 09:00-12:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
3 klst
Staðsetning
Náttúruhamfaratrygging Íslands Hlíðarsmári 14, 201 Kópavogur
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar hjá NTÍ