Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 08:00
Góð þekking á reglum varðandi óvinnufærni, veikindarétt, slysatryggingar, foreldra- og fæðingarorlof og sorgarleyfi auðveldar starfsfólki sem starfar við kjara- og mannauðsmál við úrvinnslu launamála.
Á námskeiðinu verða reglur um réttindi starfsfólks til launa vegna óvinnufærni teknar fyrir. Óvinnufærniskilyrðið er skoðað sérstaklega og farið yfir atriði eins og tilkynningarskyldu starfsmanns, læknisvottorð, rétt til launaðra fjarvista/veikindadaga, heimild til að vinna skert starf (hlutaveikindi) og skilyrði fyrir endurkomu í starf eftir lengri veikindi (starfshæfnisvottorð). Þá er fjallað um rétt til slysatryggingar vegna varanlegrar örorku og dánarbóta. Einnig verður fjallað um fæðingar- og foreldraorlof og lög um sorgarleyfi.
Að öðlast þekkingu og skilning á skilyrðinu um óvinnufærni.
Að kunna skil á reglum um veikindarétt og skyldur starfsfólks.
Að þekkja þær reglur sem gilda um slys, örorku og dánarbætur.
Að þekkja reglur um fæðingar- og foreldraorlof ásamt lögum um sorgarleyfi.
Fyrirlestur og umræður.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Mæting
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða