Jólin eiga að vera tími gleði og samveru en hjá mörgum fylgir þeim líka mikið álag. Þá hjálpar að eiga einföld verkfæri til að ná aftur jafnvægi.
Á þessu tveggja klukkustunda vefnámskeiði verður farið yfir gagnreyndar aðferðir til að hafa áhrif á streituviðbragðið og byggja upp andlega þrautseigju. Fjallað er um hvernig jákvæðar tilfinningar eins og þakklæti, umhyggja og sátt tengjast heilsu og hvernig öndun getur róað hugann. Þátttakendur prófa verkfærin á námskeiðinu sjálfu. Þeir fara heim með einföld skref sem nýtast strax, yfir hátíðarnar og lengur.
Að átta sig á hvernig streituviðbragðið virkar og hvað hefur áhrif á það.
Að geta beitt einföldum öndunar- og hugleiðsluæfingum til að draga úr streitu.
Að geta nýtt jákvæðar tilfinningar markvisst til að efla vellíðan og þrautseigju.
Opni háskólinn í Reykjavík sendir skráðum þátttakendum póst til staðfestingar á skráningu. Þau senda einnig póst með slóð á námskeiðið, athugið að sá póstur lendir stundum í ruslpósthólfinu.
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma og hraða sem hentar hverjum og einum.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Opna háskólanum í Reykjavík.
ATH. Sæti á námskeiðið er aðeins tryggt þegar staðfesting hefur borist frá Opna háskólanum.
Sigrún Þóra Sveinsdóttir sálfræðingur
Á eigin hraða
2 klst
Áhorf
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Öll sem hafa áhuga á að hafa áhrif á eigin heilsu og vilja efla andlega þrautseigju