Aftur í námskeið

Sameyki | Að dafna á tímum breytinga. Hópur 1 kl. 8:30

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 09:00

Lýsing

Breytingar eru orðnar fastur þáttur í starfsumhverfi flestra. Ný tækni, þróun vinnumarkaðarins, breyttar kröfur og breytingar innan vinnustaða kalla stöðugt á aðlögun og nýjar leiðir til að vinna saman. Þó að breytingar geti skapað ný tækifæri og eflt okkur þá geta þær einnig skapað óvissu og álag.

Í þessu gagnvirka erindi verður fjallað um hvernig við upplifum breytingar og hvers vegna þær geta haft ólík áhrif á fólk.  Áhersla verður lögð á samtal, þátttöku og miðlun reynslu. Þátttakendur fá tækifæri til að skoða eigin reynslu af breytingum, ræða hvað hefur reynst þeim vel og greina leiðir til að efla vellíðan, sveigjanleika og starfsánægju í síbreytilegu umhverfi.

Efnistök
  • Breytingar sem hluti af starfsumhverfi nútímans
  • Starfsorka, jafnvægi og seigla í annasömu og síbreytilegu umhverfi
  • Hagnýt ráð um hlutverk hugsunar, samskipta og eigin viðbragða sem nýtast í daglegu lífi
  • Samtal og sameiginleg reynsla um það sem hefur reynst vel
Hæfniviðmið

Að skilja betur hvað hefur áhrif á vellíðan í síbreytilegu starfsumhverfi.
Að átta sig á eigin styrkleikum og því sem styður við góða aðlögun.
Að kynnast einföldum leiðum til að efla starfsorku og andlega heilsu.
Að taka með sér nokkrar hagnýtar aðferðir sem nýtast í daglegu starfi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar og umræður.

Umsjón
Eyþór Eðvarðsson þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
Námsform
Staðnám
Tími
  • 10. september 2026 klukkan 08:30-09:30

Lengd
1 klst
Mat

Mæting

Staðsetning
Sameyki stéttarfélag Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar hjá Sameyki stéttarfélagi