Hér er farið yfir hvernig undirbúa má sumarfrí á faglegan og raunhæfan hátt með áherslu á tímastjórnun, skilvirka verkefnadreifingu og heilsuvernd.
Fjallað er um algengar áskoranir fyrir frí, hvernig tryggja má samfellu í verkefnum á meðan á fjarvera stendur og hvernig einstaklingar geta aftengt sig frá vinnu til að ná betri hvíld og endurheimt.
Að þátttakendur öðlist færni í að skipuleggja vinnu sína fyrir sumarfrí með markvissri tímastjórnun, ljúka eða afhenda verkefni á skýran hátt.
Að geta beitt aðferðum sem stuðla að raunverulegri hvíld og endurheimt í fríi.
Að öðlast getu til að forgangsraðaða verkefnum og getu til að setja skýr mörk varðandi aðgengi í fríi.
Að undirbúa endurkomu til vinnu úr fríi með lágmarks streitu.
Umræður, æfingar og virk þátttaka.
Boðið verður uppá morgunmat frá kl 8:15.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða