Aftur í námskeið

Sameyki | „Lokað fyrir vinnu, opið fyrir frí“ – Sumarfrí án streitu

Lýsing

Hér er farið yfir hvernig undirbúa má sumarfrí á faglegan og raunhæfan hátt með áherslu á tímastjórnun, skilvirka verkefnadreifingu og heilsuvernd. 

Fjallað er um algengar áskoranir fyrir frí, hvernig tryggja má samfellu í verkefnum á meðan á fjarvera stendur og hvernig einstaklingar geta aftengt sig frá vinnu til að ná betri hvíld og endurheimt.

Efnistök
  • Forgangsröðun verkefna fyrir frí („must do“ vs. „nice to do“)
  • Lok verkefna og skilvirk afhending (handover)
  • Samskipti og upplýsingagjöf í fjarveru (t.d. out-of-office skilaboð)
  • Að setja mörk varðandi aðgengi og vinnu í fríí
  • Heilsuvernd: streitustjórnun, andleg afhleðsla og hvíld
  • Aðferðir til að skipta úr vinnuham yfir í fríham
  • Undirbúningur fyrir endurkomu til vinnu eftir frí
Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist færni í að skipuleggja vinnu sína fyrir sumarfrí með markvissri tímastjórnun, ljúka eða afhenda verkefni á skýran hátt. 

Að geta beitt aðferðum sem stuðla að raunverulegri hvíld og endurheimt í fríi.

Að öðlast getu til að forgangsraðaða verkefnum og getu til að setja skýr mörk varðandi aðgengi í fríi.

Að undirbúa endurkomu til vinnu úr fríi með lágmarks streitu.

Fyrirkomulag

Umræður, æfingar og virk þátttaka.

Gott að vita

Boðið verður uppá morgunmat frá kl 8:15.

Umsjón
Ingrid Kuhlman þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
Námsform
Staðnám
Tími
  • 5. júní 2026 klukkan 08:30-10:00

Lengd
1,5 klst
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námskeiðið er í aðeins í boði fyrir starfsfólk Sameykis.