Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 08:00
Viltu kynna þér matvælaöryggi?
Ljóst er að öryggi og fagleg þekking í meðhöndlun matvæla er mjög mikilvæg til að tryggja heilsu fólks. Því er mikilvægt að starfsfólk sem starfar í mötuneytum, í matvælavinnslu eða við önnur störf þar sem unnið er með mat kunni vel til verka.
• Matvælaörverufræði
• Innra eftirlit, HACCP/GÁMES
• Gerð matseðla, vöruþekking og fæðuflokkarnir
• Að auka hollustu máltíða og tilbúinna matvæla
• Geymsluþol, skynmat, vöruþekking
• Ofnæmi og óþol
• Þrif og sótthreinsun
Að geta beitt reglum um innra eftirlit og HACCP/GÁMES til að tryggja öryggi og rétta meðhöndlun matvæla.
Að þekkja til geymsluþols matvæla og hreinlætis tengt matvælavinnslu.
Að geta skipulagt næringarríka matseðla og tekið tillit til ofnæmis- og óþolsvalda.
Kennt er á mánudögum og fimmtudögum kl. 17.00 - 19.00 í vefnámi á Teams.
Nánari upplýsingar um námið veita Jóhanna María og Hólmfríður, namskeid@mss.is eða í síma 4217500.
Félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar skrá sig hjá okkur en námið er kennt hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en nám hefst. Námi lýkur 2. nóvember 2026
Virk þátttaka í tímum
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða