Aftur í námskeið

Sjálfs­traust og sýni­leiki í starfi

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Ertu að nýta hæfileika þína og reynslu til fulls í starfi?

Sjálfstraust okkar hefur áhrif á hvernig við tökum þátt í verkefnum, tjáum skoðanir og nýtum hæfileika okkar í starfi.

Á þessu námskeiði er fjallað um hvernig við getum haft áhrif á vinnuumhverfið þannig að það styðji betur við vellíðan í starfi.
Unnið er með leiðir til að þekkja eigið faglegt virði, treysta eigin dómgreind, láta rödd sína heyrast og taka pláss á eðlilegan, faglegan og þægilegan hátt.

Fjallað er um hvað getur haft áhrif á frammistöðu í starfi, svo sem innri gagnrýni, fullkomnunarárátta, samanburður, ótti við að vera „of mikið“ eða "ekki nóg".

Þátttakendur fá hagnýt verkfæri til að styrkja sig andlega, auka sýnileika sinn á eigin forsendum og móta starf sitt með meðvituðum hætti þannig að það endurspegli betur eigin styrkleika, gildi og þarfir.

Í seinni hlutanum er fjallað um starfsmótun, hvernig fólk getur haft áhrif á eigið starf með litlum, raunhæfum og meðvituðum breytingum, t.d. með því að greina hvað veitir þeim orku í starfi og hvað dregur úr henni.

Með því að standa betur með sjálfum sér og nýta styrkleika sína er hægt að skapa meira jafnvægi, orku og tilgang í starfi.

Efnistök
  • Sjálfstraust og faglegt virði í starfi
  • Hvernig innri hindranir geta dregið úr sýnileika
  • Leiðir til að auka sýnileika á eðlilegan og aðgengilegan hátt
  • Hugrekki til að "taka pláss", tjá sig, standa með sér og setja mörk
  • Starfsmótun og hvernig hægt er að hafa áhrif á eigið starf með litlum breytingum
  • Raunhæfar aðgerðir til að móta starfið betur á eigin forsendum
Hæfniviðmið

Að greina hvað heldur aftur af þér í starfi og hvernig þú getur brugðist við því.
Að sjá skýrar eigin styrkleika, framlag og faglegt virði.
Að þekkja leiðir til að verða sýnilegri í starfi á eigin forsendum.
Að geta greint hvað gefur þér orku í starfi og hvað dregur úr henni.
Að geta tengt starfið betur við eigin gildi, þarfir, styrkleika og áherslur.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður og hagnýtar æfingar.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Umsjón
Lella Erlu­dótt­ir, PCC vottaður markþjálfi, stjórnendaþjálfi og mannauðsráðgjafi
Námsform
Staðnám
Tími
  • 7. október 2026 klukkan 13:00-16:00
  • 8. október 2026 klukkan 13:00-16:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
6 klst (3x2)
Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning
Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, 107 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða