Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

SSH | Skyndihjálp upprifjun, fyrir starfsfólk sem vinnur með fötluðu fólki

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Viltu rifja upp þekkingu þína í skyndihjálpina?

Þetta námskeið hjálpar þér að endurnýja þekkingu og styrkja öryggi í viðbrögðum þegar eitthvað gerist.

Í starfi á heimilum fyrir fatlaða er mikilvægt að geta brugðist hratt og rétt við þegar slys eða veikindi koma upp. Þekking í skyndihjálp þarf reglulega upprifjun svo hún sé til staðar þegar mest á reynir.

Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa áður lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp og vilja rifja upp og styrkja færni sína. Farið er yfir helstu viðbrögð á vettvangi, hvernig meta má aðstæður og grípa til viðeigandi aðgerða. Æfð eru viðbrögð við algengum slysum og bráðatilfellum, bæði líkamlegum og andlegum.

Áhersla er lögð á einfaldar og skýrar aðferðir sem hjálpa þér að halda ró, taka ákvarðanir og veita aðstoð á öruggan hátt.

Efnistök
  • Aðgerðir á vettvangi og mat á aðstæðum
  • Endurlífgun fullorðinna og barna
  • Losun aðskotahlutar úr öndunarvegi
  • Viðbrögð við blæðingum, brunasárum og beinbrotum
  • Höfuðáverkar og liðáverkar
  • Viðbrögð við bráðum veikindum (t.d. brjóstverkur, ofnæmi, flog, sykursýki, öndunarerfiðleikar, heilablóðfall)
  • Sálrænn stuðningur í erfiðum aðstæðum
Hæfniviðmið

Að þátttakendur rifji upp og styrki færni sína í skyndihjálp og geti brugðist við af öryggi og yfirvegun í neyðartilvikum.
Að viðhalda þekkingu og auka öryggi í daglegu starfi.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.

Gott að vita

Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.

Samstarfsaðili
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes.
Umsjón
Laufey Elísabet Gissurardóttir
Námsform
Staðnám
Tími
  • 7. maí 2026 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.