Hvernig getum við verið leiðandi afl í að efla menningu, umhyggju, virðingu og góð samskipti á vinnustaðnum?
Mentor er framhaldsnámskeið fyrir starfsfólk sem vill dýpka þekkingu sína á þjónandi leiðsögn og taka virkan þátt í að styðja við innleiðingu hennar á sinni starfsstöð.
Á námskeiðinu er farið nánar í hugmyndafræðina, hvernig hún birtist í daglegu starfi og hvaða hlutverki mentor leiðbeinendur gegna. Jafnframt er lögð áhersla á sjálfsskoðun, samskipti og hvernig við getum haft jákvæð áhrif á starfsumhverfi, samstarf og lífsgæði þeirra sem við styðjum.
Að geta leiðbeint öðru starfsfólki í þjónandi leiðsögn á sinni starfsstöð.
Að geta nýtt þjónandi leiðsögn markvisst í eigin starfi og samskiptum.
Að geta stutt samstarfsfólk í að efla þjónandi leiðsögn á vinnustaðnum.
Fyrirlestur, umræður og verkefni.
Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi klárað grunnnámskeiðið Þjónandi leiðsögn í lífi einstaklinga með fötlun til þess að geta skráð sig hér.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes
Guðrún Halldórsdóttir leiðbeinandi í þjónandi leiðsögn og forstöðumaður á Skammtímadvölinni Svöluhrauni
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
14 klst (7x2)
Mæting, þátttaka
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn