Hvenær telst inngrip nauðung og hvernig bregðumst við rétt við?
Þetta námskeið veitir skýra yfirsýn yfir reglur, ábyrgð og örugg vinnubrögð í krefjandi aðstæðum.
Í starfi á heimilum fyrir fatlaða geta komið upp aðstæður þar sem þarf að grípa inn í til að tryggja öryggi. Þá er mikilvægt að þekkja vel mörk nauðungar og þvingunar og vita hvernig á að bregðast við á faglegan og ábyrgan hátt.
Á námskeiðinu er fjallað um hugtökin nauðung og þvingun frá ólíkum sjónarhornum, þar á meðal lagalegu, siðferðilegu og hagnýtu. Þú færð skýran skilning á því hvað telst heimilt og hvað ekki, og hvernig hægt er að forðast aðstæður þar sem beita þarf þvingun.
Einnig er farið yfir leiðir til að draga úr spennu, fyrirbyggja átök og bregðast við ef aðstæður þróast þannig að grípa þarf inn í. Áhersla er lögð á öryggi allra, virðingu og mannlega nálgun.
Að þátttakendur öðlist skýran skilning á nauðung og þvingun og geti beitt öruggum og lögmætum vinnubrögðum í starfi.
Að efla öryggi, ábyrgð og fagmennsku í krefjandi aðstæðum.
Umræður og fyrirlestur.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða