Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Hvað gerum við þegar ástand verður alvarlegt og krefst skjótari viðbragða?
Þetta námskeið dýpkar færni þína í skyndihjálp og styrkir öryggi í erfiðari aðstæðum.
Í starfi á heimilum fyrir fatlaða geta komið upp aðstæður þar sem skjót og rétt viðbrögð skipta miklu máli. Á þessu námskeiði byggir þú ofan á grunninn úr Skyndihjálp I og lærir að takast á við alvarlegri slys og áverka sem krefjast frekari viðbragða.
Farið er yfir hvernig bregðast á við losti, blæðingum, sárum, beinbrotum og brunasárum. Þú lærir að meta aðstæður, forgangsraða og veita fyrstu hjálp á öruggan og markvissan hátt. Einnig er lögð áhersla á að halda ró og veita einfaldan sálrænan stuðning þegar á reynir.
Námskeiðið byggir á skýrum og hagnýtum aðferðum sem auðvelt er að yfirfæra á daglegt starf.
Að þátttakendur geti beitt grunnfærni í skyndihjálp við alvarleg slys og áverka og veitt bæði líkamlegan og sálrænan stuðning þegar þörf krefur.
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða