Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Hvernig getum við skapað öryggi, traust og góð tengsl í samskiptum okkar við annað fólk?
Þjónandi leiðsögn (e. Gentle Teaching) er hugmynda- og aðferðafræði sem leggur áherslu á mannleg tengsl, umhyggju og virðingu í allri þjónustu.
Á þessu grunnnámskeiði kynnumst við helstu stoðum þjónandi leiðsagnar og hvernig þær geta stutt við jákvæð samskipti, aukin lífsgæði og einstaklingsmiðaða þjónustu. Farið verður yfir hvernig hugmyndafræðin nýtist í daglegu starfi með fólki og hvernig hún tengist mannréttindum, sjálfsákvörðunarrétti og þátttöku í samfélaginu.
Að þekkja helstu grunnstoðir þjónandi leiðsagnar.
Að geta nýtt hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar í daglegum samskiptum.
Að átta sig á mikilvægi tengsla, virðingar og öryggis í þjónustu við fólk.
Fyrirlestrur og umræður.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Mæting
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða