Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

SSH | Varnarviðbrögð, fyrir starfsfólk sem vinnur með fötluðu fólki

Lýsing

Hvernig bregðumst við þegar aðstæður verða spennuþrungnar eða ógnandi?

Þetta námskeið gefur þér hagnýt verkfæri til að halda ró, fyrirbyggja átök og bregðast við á öruggan hátt.

Að geta varið sig án þess að valda skjólstæðingi skaða ef til árásar kemur. Að geta gert grein fyrir einkennum hegðunar sem getur leitt til árása og ofbeldis. Að geta stýrt skjólstæðingum í árásarham aftur í jafnvægi.

Í starfi á heimilum fyrir fatlaða geta komið upp aðstæður sem krefjast yfirvegunar og skýrra viðbragða. Mikilvægt er að geta lesið í aðstæður, greint merki um vaxandi spennu og brugðist við áður en átök myndast.

Á þessu námskeiði lærir þú að þekkja hegðun sem getur leitt til átaka eða ofbeldis og hvernig hægt er að bregðast við á rólegan og öruggan hátt. Farið er yfir leiðir til að draga úr spennu og styðja einstakling til jafnvægis, með áherslu á virðingu og öryggi allra.

Einnig er fjallað um einfaldar og öruggar varnarleiðir sem hægt er að beita ef aðstæður krefjast þess.

Efnistök
  • Einkenni hegðunar sem geta leitt til átaka
  • Fyrirbyggjandi nálgun og róandi samskipti
  • Örugg viðbrögð við spennu og uppnámi
  • Að styðja einstakling úr árásarham í jafnvægi
  • Varnarviðbrögð sem miða að öryggi allra
Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist færni til að bregðast við krefjandi aðstæðum af öryggi og yfirvegun.
Að geta varið sig án þess að valda skaða og stuðla að ró og öryggi í umhverfinu.

Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.
Gott að vita

Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.

Samstarfsaðili
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes.
Umsjón
Felix Högnason
Námsform
Staðnám
Tími
  • 3. júní 2026 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Staðsetning
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.