Hvernig er hægt að bregðast við þegar aðstæður verða spennuþrungnar eða ógnandi?
Þetta námskeið gefur þér hagnýt verkfæri til að halda ró, fyrirbyggja átök og bregðast við á öruggan hátt.
Í starfi á heimilum fyrir fatlaða geta komið upp aðstæður sem krefjast yfirvegunar og skýrra viðbragða. Mikilvægt er að geta lesið í aðstæður, greint merki um vaxandi spennu og brugðist við áður en átök myndast.
Á þessu námskeiði lærir þú að þekkja hegðun sem getur leitt til átaka eða ofbeldis og hvernig hægt er að bregðast við á rólegan og öruggan hátt. Farið er yfir leiðir til að draga úr spennu og styðja einstaklinga til jafnvægis, með áherslu á virðingu og öryggi allra.
Einnig er fjallað um einfaldar og öruggar varnarleiðir sem hægt er að beita ef aðstæður krefjast þess.
Að öðlast færni til að bregðast við krefjandi aðstæðum af öryggi og yfirvegun.
Að geta varið sig án þess að valda skaða og stuðla að ró og öryggi í umhverfinu.
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes
Felix Högnason þroskaþjálfi og atferlisfræðingur
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
3 klst
Mæting
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn