Aftur í námskeið

Sýslumenn | Næstu skref í breytingum

Lýsing

Framhald af vinnustofunni um Breytingar og hvernig við tökumst á við þær saman.

Nú er sameining sýslumannsembættanna komin vel á veg. Margt hefur þegar gerst, annað er í vinnslu og enn annað á eftir að skýrast. Þá er eðlilegt að óöryggi skapist og að það reyni á okkur öll. Þess vegna skiptir máli hvernig við tökumst á við stöðuna saman og hvernig við styðjum hvert annað.

Við þurfum ekki að vera sammála um allt. Mikilvægt er að skapa svigrúm fyrir ólík sjónarmið, ræða það sem veldur óvissu eða áhyggjum og hugsa í lausnum. Góð samskipti, traust og uppbyggilegt viðmót samstarfsfólks hafa mikil áhrif á það hvernig fólk upplifir breytingar og hvort tekst að styrkja góða þjónustu- og vinnustaðamenningu.

Vinnustofan hefst á inngangi Kristínar Þórðardóttur, sýslumanns, sem fer yfir framtíðarsýnina með hvernig starfsemin verður, hvað hefur áunnist og hvað er enn í vinnslu. Því næst tekur Eyþór Eðvarðsson við og fléttar þær breytingar við fræðilega þekkingu og reynslu þátttakenda. Unnið verður í hópum og skoðað hvað gengur vel og hvað þurfi að hafa í huga. Við veltum einnig fyrir okkur hvað verður raunverulega öðruvísi á okkar vinnustað og hvað breytist ekki.

Markmiðið er uppbyggilegt og lifandi samtal um breytingar: hvernig við bregðumst við þeim, hvað hjálpar þegar á reynir og hvað við getum sjálf gert til að breytingar gangi betur, bæði fyrir okkur sjálf og fólkið í kringum okkur.

Efnistök
  • Farið yfir hvernig starfsemin verður, hvað hefur áunnist og hvað er í vinnslu
  • Tenging við fyrri vinnustofu og fræðileg nálgun á breytingar
  • Þjónustumenning og góð vinnustaðamenning í gegnum breytingar
  • Óöryggi og ólík sjónarmið við breytingar: að vera uppbyggileg og hugsa í lausnum
  • Staðan í dag: hvað gengur vel og þarf að hafa áhyggjur af einhverju?
  • Hvað verður raunverulega öðruvísi á okkar vinnustað og hvað breytist ekki?
Hæfniviðmið

Að skilja sýn á þjónustu og starfsemi vinnustaðarins eftir breytingar og hvað hefur áunnist.
Að þekkja hvað einkennir góða þjónustumenningu og hvernig hægt er að efla hana.
Að geta rætt óöryggi og ólík sjónarmið á opinn og uppbyggilegan hátt.
Að greina hvað gengur vel, hvað þarf að hafa áhyggjur af og hvað breytist ekki.
Að sjá hvernig þú getur lagt þitt af mörkum til að breytingar gangi vel og stutt samstarfsfólk þitt.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður í hópum.

Gott að vita

Athugið að þátttakendum er skipt í umræðuhópa og þurfa því að hafa góða aðstöðu til að geta tekið þátt.

Umsjón

Kristín Þórðardóttir sýslumaður og Eyþór Eðvarðsson þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun

Námsform

Streymi

Tími
  • 10. desember 2026 klukkan 09:00-11:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

2 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Starfsfólk sýslumannsembættanna