Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Hvernig getum við aukið þjónustugæði?
Þjónustugæði byggjast oft á litlum en mikilvægum atriðum. Framkoma, viðbrögð og samskipti geta haft stór áhrif á upplifun viðskiptavina og samstarfsfólks.
Þetta stutta og hagnýta rafræna námskeið fjallar um fimm lykilþætti þjónustugæða og hvernig þeir birtast í daglegu starfi. Efnið er sett fram í kennslumyndbandi með leiknum dæmum úr raunverulegum aðstæðum. Þar má sjá bæði góða og síður góða þjónustu og hvernig mismunandi viðbrögð geta breytt upplifuninni.
Með námskeiðinu fylgir verkefnapakki sem hjálpar þér að tengja efnið við eigið starf. Þar gefst tækifæri til að ígrunda eigin vinnubrögð og prófa einfaldar aðferðir sem geta styrkt samskipti og þjónustu.
Tveimur vikum eftir að opnað hefur verið fyrir námsefni námskeiðis færð þú stuttan eftirfylgnipóst sem minnir á lykilatriðin og hvetur til áframhaldandi þróunar í starfi. Þannig festist lærdómurinn betur í sessi og verður hluti af daglegum vinnubrögðum.
Að öðlast skýran skilning á helstu þáttum þjónustugæða og hvernig þeir geta nýtt þá í daglegu starfi
Að efla öryggi í samskiptum og styðja við jákvæða þjónustuupplifun
16.apríl hefur kennari samband og veitir þér aðgang að lokuðu námssvæði, þar er að finna myndband og annað kennsluefni.
Aðgangur verður opinn í 3 vikur en þú getur unnið námsefnið á þínum hraða og valið hversu djúpt þú ferð í verkefnin.
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.