Með breytingu á stjórnsýslulögum og fleiri lögum árið 2019 voru settar nýjar lagareglur um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfsmanna í sérstökum kafla sem bættist við stjórnsýslulögin. Nýi kaflinn felur í sér meginreglu um að opinberir starfsmenn njóti tjáningarfrelsis. Það verður aðeins takmarkað þegar þörf krefur og þá samkvæmt skýrum og fyrirsjáanlegum lagaákvæðum. Með ákvæðum laganna og efni þagnarskyldu er leitast við að gera skýrara til hvaða upplýsinga þagnarskyldan taki, en slíkt er mikilvæg forsenda tjáningarfrelsis.
Á námskeiðinu verður leitast við að fjalla um hvar þessi mörk tjáningarfrelsis og þagnarskyldu kunna liggja, m.a. með tilliti til þeirra sjónarmiða sem leidd verða úr réttarframkvæmd bæði hér að heiman og erlendis.
Að geta beitt nýjum lagareglum stjórnsýslulaga af öryggi við úrlausn flókinna álitamála á vinnustaðnum.
Að geta gætt jafnvægis á milli réttar síns (eða starfsmanna sinna) til tjáningar og skyldunnar til að gæta trúnaðar og hagsmuna stjórnsýslunnar.
Fyrirlestur og umræður. Námskeiðið fer eingöngu fram í beinu streymi, upptaka verður ekki aðgengileg að námskeiði loknu.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Stofnun stjórnsýslufræða HÍ.
Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Mæting
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða