Vilt þú læra að nota tölvuna og athafna þig á netinu af öryggi?
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja styrkja grunnfærni sína í tölvunotkun á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Lögð er áhersla á hagnýta færni sem nýtist strax í daglegum verkefnum, hvort sem er heima eða í starfi. Námið fer fram í skýru og styðjandi umhverfi þar sem þátttakendur fá tíma til að læra á sínum hraða og byggja upp öryggi í notkun tækninnar.
Þú kynnist helsta hugbúnaði eins og Windows stýrikerfinu, Word og Excel og jafnframt eykur færni þína í öruggri notkun upplýsingatækni.
Að öðlast traustan grunn í tölvunotkun sem nýtist í daglegu lífi og starfi
Að öðlast sjálfstraust til að nýta tæknina á þínum forsendum
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.