Viltu ná traustum tökum á Excel?
Excel er öflugt verkfæri til að halda utan um gögn, reikna út niðurstöður og setja upplýsingar fram á skýran hátt.
Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Excel, skref fyrir skref, án þess að þurfa fyrri reynslu. Farið verður yfir helstu verkfæri og viðmót, uppsetningu einfaldra formúla og hvernig þú nýtir gervigreindarhjálpina Copilot til að gera vinnuna auðveldari.
Þú æfir þig í að vinna með reiti, stilla vísanir, móta texta og töflur og búa til einföld myndrit sem styðja við faglega framsetningu. Einnig lærir þú að setja upp haus og fót, stilla prentun og sjá til þess að skjölin þín líti vel út bæði á skjá og á pappír.
Að öðlast öruggan grunn í Excel
Að geta unnið sjálfstætt og sparað tíma með betri yfirsýn og tæknilega færni sem nýtist í vinnu, námi eða persónulegum verkefnum
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.