Aftur í námskeið

Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað

Lýsing

Góð samskipti eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.

Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.

Skoðaðar verða leiðir til að auka vellíðan á vinnustað, auka færni í faglegum samskiptum á vinnustað, auka sjálfstraust í samskiptum og auka skilning á eðli viðbragða og hegðunar annarra.

Efnistök
  • Fagleg hegðun og hlutverk á vinnustað
  • Jákvæð og uppbyggileg samskipti
  • Skilningur á ólíkum samskiptastílum
  • Viðbrögð við krefjandi samskiptum
  • Áræðni og skýr framkoma í starfi
Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir því hvað fagleg hegðun á vinnustað felur í sér

Að geta gert grein fyrir eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað

Að geta notað ýmsar leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að auka starfsánægju

Að geta brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti

Að þekkja hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í samskiptum

Fyrirkomulag

Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.

Gott að vita
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Námsform
Staðnám
Tími
  • 20. apríl 2026 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð
Markhópur
Öll sem vilja auka færni og vellíðan í samskiptum á vinnustað

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
20.04.2026Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað09:00Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir