Gervigreind er að umbreyta vinnustöðum, þjónustu og ákvarðanatöku. Brátt mun nýtt regluverk skilgreina hvernig hún má og á að vera notuð. Síðar á þessu ári verður reglugerð Evrópusambandsins um gervigreind (EU AI Act) innleidd á Íslandi og mun hún hafa bein áhrif á fyrirtæki, stofnanir og opinbera aðila sem þróa, kaupa eða nýta gervigreind.
Mikilvægt er að skilja þau rök sem búa að baki reglum um gervigreind, kosti þeirra og galla, og áskoranir við reglusetningu. Sá skilningur auðveldar túlkun og beitingu regluverksins og aðstoðar við regluhlítni.
Til að setja evrópska regluverkið í samhengi og dýpka skilning verður einnig litið til þróunar og löggjafar í öðrum heimshlutum.
Vertu tilbúin(n) þegar regluverkið tekur gildi. Þekkingin sem þú færð hér getur sparað tíma, dregið úr áhættu og aukið traust í notkun gervigreindar.
Að þekkja gervigreind og hvernig hún er ólík öðrum tæknibyltingum
Að þekkja notkunarmöguleika og hættur gervigreindar
Að öðlast skilning á reglum Evrópuréttar sem gilda um gervigreind
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 05.05.2026 | Gervigreind – regluverk og stefnumótun | 12:30 | Unnur Edda Sveinsdóttir |
| 07.05.2026 | Gervigreind – regluverk og stefnumótun | 12:30 | Unnur Edda Sverrisdóttir |