Aftur í námskeið

Kvíði, streita og áhyggjur

Lýsing

Á þessu námskeiði er kafað djúpt í eðli kvíða til að varpa ljósi á hvað hann er, hvernig hann birtist í daglegu lífi og hvers vegna hann er mun algengari en margir telja. Farið er yfir ólík afbrigði kvíða og hvernig einkenni geta verið breytileg á milli einstaklinga, auk þess sem skoðuð eru náið tengsl streitu og stöðugra áhyggna við almenna líðan.
Lögð er rík áhersla á að skilja vítahring kvíðans – hvernig ákveðin hegðun getur óvart viðhaldið eða styrkt kvíðann og hvað veldur því að hann festist í sessi.

Sérstakur kafli er helgaður ofsakvíða, þar sem farið er yfir upplifunina af kvíðaköstum og hvað sé mikilvægt að hafa í huga þegar þau dynja yfir. Þá er einnig fjallað um félagskvíða og algeng hegðunarmynstur eins og frestunaráráttu og fullkomnunaráráttu, sem oft spretta úr kvíða. 

Efnistök
  • Skilgreining á kvíða
  • Mismunandi birtingarmyndir
  • Vítahringurinn rofinn
  • Ofsakvíði og viðbrögð
  • Streita og daglegt líf
  • Félagslegur kvíði og hegðun
Hæfniviðmið

Að geta greint helstu einkenni og ólíkar birtingarmyndir kvíða í daglegu lífi og starfi.
Að þekkja vítahring kvíðans og hegðunarmynstur (t.d. forðun eða öryggishegðun) sem viðhalda honum.
Að þekkja einkenni ofsakvíða og geta beitt helstu bjargráðum þegar kvíðaköst dynja yfir.
Að geta greint frestunaráráttu og fullkomnunaráráttu sem afleiðingar kvíða og nýtt þekkingu sína til að bregðast við þeim.
Að öðlast verkfæri til að rjúfa neikvæð hegðunarmynstur og bæta eigin sjálfsskoðun. 

Fyrirkomulag

Þú getur tekið námskeiðið á eigin hraða og færð aðgang að því hjá Frama. Aðgangur telst þó ekki öruggur fyrr en þú hefur fengið staðfestingarpóst frá Frama.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Frama.

Umsjón
Sóley Dröfn Davíðsdóttir, sálfræðingur
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
2 klst
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem hafa áhuga á málefninu