Viltu skipuleggja hugmyndir á sjónrænan hátt?
Hugarkort eru öflug aðferð til að sjá heildarmyndina og skipuleggja hugsun og þekkingu á hagnýtan, skemmtilegan og árangursríkan hátt. Hugarkort eru einnig mikið notuð sem glósutækni og er gerð þeirra kennd við marga háskóla til stuðnings við lærdóm og sköpun.
Á þessu námskeiði færð þú innsýn í hvernig á að búa til hugarkort, hvaða aðferðir henta best og hvernig gervigreind getur stutt við ferlið. Þú lærir að nýta þessi verkfæri til að auðvelda þér skipulagningu, lausnaleit og skapandi hugsun í daglegu starfi.
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is
Þátttaka
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.