Aftur í námskeið

Myndvinnsla með gervigreind

Lýsing

Viltu læra að búa til og breyta myndum með hjálp gervigreindar?

Gervigreind hefur gjörbreytt myndvinnslu og opnað nýjar víddir fyrir alla.

Á þessu námskeiði lærir þú að nýta krafta gervigreindar til að búa til og breyta myndum á áhrifaríkan hátt. Þú kynnist einföldum verkfærum sem gera þér kleift að umbreyta hugmyndum í myndir, laga eða bæta tiltekin atriði og þróa sjónrænt efni sem nýtist í starfi eða námi.

Námskeiðið er hannað fyrir byrjendur og krefst ekki fyrri reynslu af myndvinnslu.

Efnistök
  • Yfirlit yfir helstu gervigreindarverkfæri fyrir myndvinnslu
  • Myndagerð út frá texta (texti í mynd)
  • Breytingar á eldri myndum (litir, stíll, andrúmsloft)
  • Að fjarlægja bakgrunna og sameina myndir
  • Að búa til hreyfimyndir úr kyrrmyndum
  • Hagnýtar leiðir til að nota gervigreind í skapandi verkefnum
  • Hvernig á að skrifa gagnlegar, skýrar myndkvaðningar (prompts) 
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að nýta gervigreind við myndvinnslu og auka þannig sköpunarmöguleika og skilvirkni
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson tölvukennari
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat

Þátttaka

Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja læra að nýta gervigreind við myndvinnslu, hvort sem er í starfi, námi eða frítíma, án þess að þurfa fyrri reynslu af myndvinnsluforritum