Viltu nýta Outlook betur til að bæta skipulag og gera samskipti skilvirkari?
Outlook er meira en tölvupóstur, það er öflugt verkfæri sem getur hjálpað þér að halda utan um verkefni og tengiliði.
Á þessu námskeiði lærir þú að forgangsraða verkefnum og spara tíma með fjölbreyttum verkfærum sem Outlook býður uppá. Þú færð leiðsögn í að halda dagbók, bóka fundi og almenna skjalastjórnun. Einnig verður skoðað hvernig þú getur notað gervigreindartól eins og Copilot til að einfalda vinnuna.
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is
Þátttaka
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.