Þarftu að kynna hugmyndir eða upplýsingar á skýran hátt?
Góð kynning snýst ekki bara um fallegar glærur, heldur um skýra framsetningu sem nær til fólks.
Á þessu námskeiði lærir þú að nýta PowerPoint á markvissan hátt: hvernig á að byggja upp kynningu, velja viðeigandi myndefni, liti og letur, og nýta margmiðlun til að styðja við frásögnina. Þú kynnist einnig hvernig gervigreindartólið Copilot getur aðstoðað við að einfalda og bæta kynningarvinnu.
Meðal þess sem farið verður yfir:
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is
Þátttaka
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.