Aftur í námskeið

SharePoint

Lýsing

Viltu nýta SharePoint til að bæta samvinnu og skipulag í starfi?

SharePoint er öflugt samstarfs- og skjalastjórnunarkerfi frá Microsoft sem hjálpar skipulagsheildum að halda utan um upplýsingar, efla teymisvinnu og tryggja að rétt fólk hafi aðgang að réttum gögnum á réttum tíma. SharePoint má nota til að halda utan um og vinna með efni og upplýsingar eins og skjöl, gagnalista, vefsíður og verkefni og jafnvel myndir eða  myndbönd.

Á þessu námskeiði  kynnist þú helstu virkni kerfisins sem almennir notendur þurfa að þekkja, farið verður í:

  • Grunnatriði og notendaviðmót: notendaviðmót, SharePoint svæði, vefpartar (fréttir, tenglar, viðburðir), Office og SharePoint, OneDrive, Office & SharePoint
  • Skjalastjórnun og skipulag gagna: gerð og stillingar skjalasafna, skjalasýn, útgáfusaga, samhæfing skjala
  • Leit og aðgengi að upplýsingum: leit í SharePoint, sía og flokka
  • Samvinna og örugg deiling: deiling á gögnum, samhæfing við Office
  • Efnisstjórnun og uppbygging vefsvæða: gerð síðna (Pages), gerð og tegundir lista
Efnistök
  • Grunnatriði og notendaviðmót
  • Skjalastjórnun og skipulag gagna
  • Leit og aðgengi að upplýsingum
  • Samvinna og örugg deiling
  • Efnisstjórnun og uppbygging vefsvæða
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu á helstu virkni SharePoint til að geta notað á öruggan hátt til almennra nota
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson tölvukennari
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
12 klst
Mat

Þátttaka

Verð
43.500 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja kynnast samvinnuverkfærinu SharePoint og nýta það til að bæta samvinnu og skipulag í starfi