Aftur í námskeið

Wix, vefsíðugerð

Lýsing

Viltu búa til eigin vefsíðu án tæknilegrar þekkingar?

Wix er vefumsjónarkerfi sem gerir þér kleift að búa til og reka vefsíðu frá grunni án þess að kunna forritun eða hafa tæknilegan bakgrunn. Með Wix er hægt að:

  • Búa til vefsíður
  • Kynna/selja vöru, þjónustu eða starfsemi
  • Safna tengiliðum og fyrirspurnumAuka sýnileika á netinu

Á þessu námskeiði kynnist þú notendaviðmóti Wix, helstu hugtökum vefgerðar og helstu aðgerðum, allt frá því að búa til fyrstu síðuna þína upp í að tengjast lén, safna skráningum og koma þér í leit á Google. Fjallað verður um:

  • Kynning og undirbúningur: hvað er Wix og til hvers hentar það?
  • Uppsetning og grunnskref: stofna aðgang og velja sniðmát, að tengja lén og tölvupóst við síðu
  • Efni og framsetning: setja inn myndir og myndbönd, myndasöfn og fréttasíður
  • Samskipti og tengslamyndun: tengiliðaform og samskiptaleiðir, setja inn skráningarform, safna upplýsingum og setja upp póstlistakerfi
  • Sýnileiki og aðgengi: leitarvélabestun 
Efnistök
  • Kynning og undirbúningur
  • Uppsetning og grunnskref
  • Efni og framsetning
  • Samskipti og tengslamyndun
  • Sýnileiki og aðgengi
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta færni til að búa til og viðhalda eigin vefsíðu með Wix
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson tölvukennari
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat

Þátttaka

Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja búa til eigin vefsíðu, hvort sem er fyrir fyrirtæki, félagasamtök eða persónulega notkun, án þess að hafa bakgrunn í vefhönnun eða forritun