Viltu dýpka þekkingu þína á Word og vinna með flóknari skjöl?
Word II er framhald af Word I, á þessu námskeiði lærir þú að vinna með lengri og flóknari skjöl á skipulagðan og skilvirkan hátt. Þú lærir m.a. að búa til sniðmát, skipa skjölum í kafla, setja upp efnisyfirlit sjálfkrafa, nota neðanmálsgreinar og atriðisorðaskrár. Einnig kynnist þú helstu öryggisstillingum.
Með þessum verkfærum getur þú unnið fjölbreytt verkefni á fagmannlegan hátt og búið til vandaðar skýrslur í starfi, námi eða persónulegum verkefnum.
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is
Þátttaka
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.